Timber Sealant, 250 ml úðabrúsi og askja1 / 8
1 / 8
11Fyrir heimili og fyrirtæki

Timber Sealant

Ósýnileg, vatnsfráhrindandi vörn fyrir ómeðhöndlaðan við, palla og útihúsgögn.

  • Hrindir frá vatni
  • Andar og ósýnileg
  • Ein umferð
  • Allt að 5 ár
Veldu stærð
7.160 kr.Smásöluverð með VSK
NM-11-250ML

Sótt í Síðumúla 1 eða sent með Póstinum eða Dropp.

Helstu eiginleikar

Timber Sealant er vatnsbundið efni sem smýgur inn í ómeðhöndlaðan við og ver hann gegn vatni, blettum og förum. Það er ósýnilegt og breytir hvorki útliti né áferð viðarins. Viðurinn andar áfram og fær að eldast og grána á náttúrulegan hátt.

Timber Sealant hentar á palla og verandir, girðingar, útihúsgögn og blómakassa, og innanhúss á viðarfleti, borðplötur, krossvið og þakspón. Ein umferð nægir.

Efnið hentar ekki á málaðan eða lakkaðan við. Á olíuríkan við eins og merbau, rauðvið, sedrusvið og blackbutt þarf fyrst að láta tannín skolast út.

  • Smýgur inn í viðinn og ver hann gegn vatni og blettum
  • Ósýnileg: viðurinn heldur útliti og áferð
  • Viðurinn andar og fær að grána náttúrulega
  • Ein umferð með pensli, rúllu eða úða
  • Fyrir palla, girðingar, útihúsgögn og innanhússvið
  • Vatnsbundin og UV-þolin

Hentar fyrir

  • Pallar, verandir, girðingar og veggir úr viði
  • Útihúsgögn og blómakassar
  • Viðarfletir innanhúss, borðplötur, krossviður og þakspónn

Hentar ekki fyrir

  • Málaðir eða lakkaðir fletir
  • Viður sem hefur þegar verið meðhöndlaður með öðru þéttiefni
  • Olíuríkur viður, nema tannín hafi áður skolast út
  • Notkun í rigningu eða við hitastig undir 7 °C
50–80
ml á fermetra